Á síðustu tveimur sumrum hafa veiðimenn uppgötvað Gufuá uppá nýtt; séð hana í nýju ljósi. Mikið vatn hefur verið í ánni og við þær aðstæður myndast margir skemmtilegir nýjir veiðistaðir, hyljir og strengir sem oft geyma fiska. Þeir sem duglegastir hafa verið að skoða sig um, ekki síst á efri hluta árinnar, hafa veitt vel, sett í marga fiska þó ekki hafi þeir allir skilað sér á land. Í gær komu 5 laxar á land og annar eins fjöldi tók agnið en hafði betur í glímunni við veiðimanninn. Þó svo fjöldi laxa í Gufuá er ekki sá sami og í fyrra, þá hefur laxi verið að fjölga í ánni síðustu daga og ekki útséð með að um ágætt meðalár verði um að ræða. Við hvetjum þá veiðimenn sem kíkja í ána á næstunni að vera duglega að leita af fiski, ekki síst á efri svæðum árinnar en þar hafa um 80% laxa sumarsins veiðst. Það eru lausar stangir í Gufuá í Ágúst – sjá hér.