Veiðin hófst í Hlíðarvatni um helgina, 1. maí, í strekkings vindi og kulda. Smá kropp var þann dag, en engin magn veiði. Nú hefur veðrið lagast nokkuð, þó veiðimenn sem voru við Hlíðarvatn í dag segðu að þokuslæðingur væri við vatnið og fremur kalt. Einar Falur er einn þessara veiðimanna. Hann sagði að þeir félagar hefðu náð 11 fínum bleikjum og misst annað eins. Hann sagðist einnig sjá að aðrir veiðimenn við vatnið væru „í fiski“. Veiðisvæði sem voru að gefa voru m.a. Réttin, Gamlavör og Hlíðarey. Eins og síðustu ár, þá er það ekki einungis bleikja sem veiðimenn eru að fá. Í vikunni kom m.a. einn 49cm sjóbirtingur á land. Bleikjan var að taka ýmsar þekktar púpur eins og Peacock, Killer, Ölmu rún og Krókinn.
Veðrið næstu daga gefur ástæðu til að ætla að veiðimenn við Hlíðarvatn eigi von á góðu. Spáð er hægviðri og hita 6-10°.