Veiði hófst í Ytri Rangá 21. júní. Veiðin hefur verið jöfn og stöðug frá fyrsta veiðidegi, ca 20-30 laxar á dag. Framan af var stórlaxinn uppistaðan í aflanum en undanfarna daga hefur smálaxinn verið að skila sér uppí ána. Nú eru um 400 laxar komnir á land sem telst mjög gott á þessum tíma, ef skoðuð er tölfræði liðinna ára. Framundan er stórstreymi sem ætti að skila enn stærri göngum uppí Ytri, dag hvern.
Ytri Rangá er uppseld í júlí, ágúst og stóran hluta Septembermánaðar og bókanir fyrir árið 2018 ganga gríðarlega vel.
Hérna til hliðar má sjá stærsta lax sumarsins, hingað til í Ytri, 95cm hæng sem kom á land í Djúpósnum þann 5. júlí.