Nú eru veiðileyfi á Laxamýrarsvæðið í Laxá í Aðaldal komin inná veiða.is.
Laxá í Aðaldal er ein þekktasta laxveiðiá landsins og er hún ekki síst þekkt fyrir magn stórlaxa sem þar veiðast á hverju ári. Fjöldi stanga veiðir á laxasvæði Laxár, á 2 aðalsvæðum, Nessvæðinu og Laxamýrarsvæðinu.
Laxamýrarsvæðið er tvískipt. Neðri hlutinn er ofan og neðan Æðarfossa og efri hlutinn er ofan við Nessvæðið. Félagar í þeim veiðifélögum sem standa að veiði að Laxamýri, fá daga úthlutaða á hverju ári og með fyrirfram ákveðinni röð veiðisvæða sem veidd eru hverju sinni. Á 2 dögum ná veiðimenn að veiða veiðisvæðin á Laxamýri.
Hér má finna daga nokkur holl á Laxamýrarsvæðinu, 4 dagar í senn. Ef áhugi er fyrir 2 dögum, þá er hægt að láta sérstaklega vita af því. Innifalið í verðinu er veiðileyfi fyrir 1 stöng og fæði/gisting fyrir einn veiðimann