Við höfum fengið fréttir síðustu 3 daga frá veiðimönnum sem hafa verið í Gufuá. Þær fréttir segja okkur að töluvert mikið af fiski sé neðst í ánni, á hinu svokalla „núlli“, en einnig allt uppí veiðistað nr. 10. Veiðimenn sem voru við veiðar 5. júlí náðu 7 löxum og þeir sem voru við veiðar í gær, 7. júlí, náðu 9 löxum. Heildarveiðin er núna komin í 31 lax.

Við hvetjum alla sem eru á leiði í Gufuá, og eru ekki kunnugir, að leita sér upplýsinga um það hvernig best er að standa að veiðum við ána. Snemma á sumrin þá er mest veiðin neðst á svæðinu, á því svæði þar sem sjávarfalla gætir.

Hér má finna lausa daga í Gufuá.

Mynd: Afli frá 5. júlí, Veiðimaður Valur Kristinsson