Straumar í Borgarfirði er afar vinsælt veiðisvæði. Veitt er á á 2 stangir í Straumunum og leyfilegt agn í júní og júlí er fluga en frá 1. ágúst má einnig veiða á spún á svæðinu. Við vorum að fá í endursölu mjög áhugavert holl, 9-11. ágúst. Vænta má þess að töluvert/mikið af laxi verði á svæðinu eða á leið um svæðið, enda stórstreymi dagana á undan. Einnig ætti birtingurinn að vera mættur.