Holl í Vatnsdalsá, Silungasvæði eru komin á veiða.is – Silungasvæði Vatnsdalsár hefur í gegnum árin verið geysilega vinsælt veiðisvæði. Mikið af silungi veiðist á svæðinu en einnig veiðast alltaf nokkrir tugir laxa á svæðinu sumar hvert. Aðgengi að flestum veiðistöðum er mjög gott og veiðisvæðið er fjölbreytt.
Veiðisvæðið er tvískipt; Efri svæðið er fyrir ofan Flóðið og nær fram að Undirfelli. Neðri hluti svæðisins er fyrir neðan brúna á þjóðvegi 1, Hnausabrú.
Veitt er á 10 stangir á Silungasvæðinu og leyfilegt agn er fluga. Stangirnar 10 eru yfirleitt seldar saman í pakka – hægt er að skoða undantekningar á þeirri megin reglu.