Tvö af þeim veiðisvæðum sem eru í sölu hér á veiða.is eru annars vegar Gufuá og hinsvegar Hvolsá og Staðarhólsá. Veiðin á báðum þessum svæðum hefur verið fín í sumar og vaxandi til dagsins í dag. Veiðimenn sem voru í Hvolsá og Staðarhólsá í morgun, lönduðu 7 löxum á morgunvaktinni. Að sögn þeirra og bænda á svæðinu, þá er mikið af laxi í lóninu og einnig er töluvert af laxi genginn uppí árnar. Bleikjuveiði hefur einnig verið góð í Hvolsá og Staðarhólsá í sumar.

Veiðin í Gufuá hefur einnig verið góð í sumar. Um 70 laxar skráðir í bókina og einnig hefur verið eitthvað um það að veiðimenn hafi ekki skráð veiðina við brottför. Veiðimenn sem voru í ánni í gær, náðu 9 löxum. Fyrir þá sem eru á leið ií Gufuá er um að gera að leita upplýsinga hjá staðkunnugum. Þó svo að síðustu daga þá hafi verið að veiðast lax uppfyrir veiðistað nr 10, þá er mest veiðin niður á hinu svokallaða núlli.

Fyrir áhugasama þá eru laus holl framundan í Hvolsá og Staðarhólsá einnig má telja að veiðin geti verið mjög fín þegar liður á sumarið og í haust, miðað við það magn af laxi sem er í ánum, eða niðri í lóninu núna. Hér eru lausir dagar í sumar.

Gufuá er núna fullbókuð vel fram í ágúst en haustið getur verið mjög áhugaverður tími í ánni, sérstaklega þegar fer að rigna og vatnsmagnð eykst í ánni. Hér eru lausir dagar í Gufuá í sumar.