Veiðin í Hvolsá og Staðarhólsá er áfram mjög góð, þrátt fyrir að vatnið hafi nú minnkað í ánum. Síðasta holl var með 14 laxa og 42 bleikjur og að sögn staðarhaldara þá var mikið af fiski neðst á svæðinu en einnig ofar í ánum. Veiðimenn fengu aflann bæði á flugu og maðk.
Fram undan eru laus holl í Hvolsá og Staðarhólsá og við viljum við benda áhugasömum einnig á Septemberdaga sem oft geta reynst drjúgir, ekki síst þegar fer að rigna.