Veiðin í Ytri Rangá gengur mjög vel þessa dagana. Áin er núna komin yfir 3.000 laxa. Um og yfir 100 laxar eru að koma á land á dag. 10/8 gaf 127 laxa og eru fínar göngur uppí ána. Engin leyfi hafa legið á lausu í ánni í sumar, enda var áin uppbókuð snemma síðasta vetur. Nú hinsvegar vorum við að fá nokkrar stangir í endursölu, stangir í lok ágúst. Fullt verð er 150þ á stangardag en þær fast á tilboðsverði, kr. 120þ pr stangardag. Flott tækifæri fyrir veiðimenn og konur til að skella sér í á sem er full af laxi. Öll svæði eru að gefa vel.