Við vorum að fá inná borð til okkar forfallastangir í Ytri Rangá, 30. ág til 2. sept. Hægt er að bóka 1 eða fleiri daga. Gefinn er góður afsláttur vegna þessara aðstæðna. Veiðin í Ytri er búin að vera mjög góð að undanförnu og ennþá eru veiðimenn að veiða lúsuga laxa. Hollið sem er við veiðar núna hafa stundað ána mjög hóflega, einungis 5-6 tíma á dag. Samt sem áður hefur dagveiðin verið 50-80 laxar. Þeir sem koma í kjölfar þeirra sem nú eru við veiðar, mun koma að ánni næstum því hvíldri, ;-)
Heildarveiði í Ytri Rangá þetta sumari er núna rétt um 4.400 laxar.
Einnig vekjum við athygli á því að nú eru október dagar komnir inná vefinn. Hérna má finna forfallastangirnar og októberdagana.