Á dögunum auglýsti stjórn veiðifélags Straumfjarðarár eftir tilboðum í veiðirétt árinnar til næstu 5 ára. Tilboðsfrestur var til 25. október. Góð þátttaka var í útboðinu og skv upplýsingum frá Páli Ingólfssyni formanni veiðifélagins, þá var tilboð sem barst frá SVFR langhæsta tilboðið, sem var skv. okkar útreikningum ca. 40-45% yfir leiguverði síðasta árs. Tilboðið hljóðaði uppá 35 m.kr. á ári eða samtal kr. 175 m.kr yfir 5 ára tímabil.
Stjórn veiðifélagsins mun í dag ákveða framhaldið, við hvern verður fyrst rætt við og að sjálfsögðu er líklegt að SVFR sé fyrsti kosturinn.
Önnur tilboð sem bárust voru flest einnig mun hærri en leiguverð síðasta sumars. Skv. okkar upplýsingum bárust 14 tilboð í veiðiréttinn. Þessi sprengja í útboðsverði, nafn tilboðsgjafa og fjöldi tilboða gefur okkur ýmsar vísbendingar. 1) Meðal annars að eftirspurn erlendis frá eftir laxveiði er góð þessi misserin. 2) Eftir almennan uppgang á Íslandi síðustu árin þá er mikið af fjármagni til, sem leitar nú aftur, eins og fyrir árið 2008, í óhefðbundnar og kannski áhættusamari fjárfestingar. 3) Og kannski að síðustu, að mynni margra nær ekki mörg ár aftur í tímann – veiði getur sveiflast mikið og einnig eftirspurn eftir veiðileyfum, ekki síst dýrum laxveiðileyfum. Eftir síðasta útboð í Straumfjarðará, þar sem mikil hækkun var á leiguverði, þá töldu margir að hæpið væri að áin stæðu undir því verði, hvað þá nú þegar leiguverðin gæti hækkað um ca. 10 m.kr.