Laxveiðitímabilinu er formlega lokið þetta sumarið/haustið. Í heild veiddust um 46.500 laxar í sumar sem er um 10% yfir langtíma meðaltali áranna 1974 – 2016. Veiðin í ár var samt um 6.800 löxum minni en hún var í fyrra. Aflahæsta áin var Ytri Rangá, enn eitt árið. 7.451 lax veiddist í Ytri Rangá og Vesturbakka Hólsár. Miðfjarðará var í öðru sæti með 3.765 laxa og Eystri Rangá var númer 3 í röðinni með 2.143 skráð laxa.
Veiðin fór fremur hægt af stað en lokaspretturinn var góður i ýmsum ám. Minna virðist hafa veiðst af stórlaxi þetta sumarið , en yfirleitt.
Veiðimenn eru farnir að huga að næsta ári og eru margar laxveiðiár full bókaðar nú þegar. Ytri Rangá er ein þeirra, en nú er júní, júlí og ágúst og stærsti hluti September, full bókaður. Við erum farin að taka við bókunum í ýmsar aðrar laxveiðiár sem eru í sölu hérna á veiða.is. Það er um að gera að senda okkur póst ef þið hafið áhuga á að bóka fyrir næsta ár.