Hvolsá og Staðarhólsá falla í einum ósi til sjávar í Saurbæ í Dalasýslu. Veitt er með samtals 4 stöngum í ánum. Leyfilegt agn er fluga og maðkur. Mjög gott veiðihús er við Hvolsá sem veiðimenn hafa aðgang að. Rúmar það 10 manns í gistingu í 6 herbergjum. Veiðileyfin í Hvolsá og Staðarhólsá, fyrir veiðisumarið 2018, eru komin á vefinn. Þau má finna hérna.

Veiðin í sumar, 2017, var góð í Hvolsá og Staðarhólsá og mikið af fiski gekk upp í árnar, bæði lax og bleikja. Verð veiðileyfa er frá 30-39.000 fyrir stangardaginn. Yfir aðal veiðitímann, frá miðjum júlí og fram í byrjun September, eru allar 4 stangirnar seldar í einum pakka, hvert holl. Utan þess tíma er hægt að bóka 2+2 stangir. Hérna má finna hollin í Hvolsá og Staðarhólsá.