Vatnamótin eru eitt besta sjóbirtingssvæðið á Suðurlandi og á landinu öllu. Gríðarlega mikið fiski fer um svæðið og er á svæðinu, stóran hluta veiðitímans. Sjóbirtingurinn er kominn uppá þetta svæði, fyrr en mörg önnur svæði og því getur veiðin verið komin í fullan ganga, snemma í ágúst. Mörg ágúst holl, í sumar og síðasta sumar, veiddu mjög vel. Heildarveiði á Vatnamótasvæðinu á þessu ári, taldi nærri 1.400 fiskum að sögn Ragnars í Hörgslandi.
Veitt er á 5 stangir í Vatnamótunum. Á vorin er fluga eina leyfða agnið, en um sumarið og haustið má einnig veiða á spún og maðk. Gisting í fína húsi að Hörgslandi, fylgir með veiðileyfunum.
Núna voru að koma í sölu, hingað inná veiða.is, óbókuð holl í Vatnamótunum í vor, sumar og haustveiðina. Ávallt eru allar 5 stangir bókaðar í einum pakka. Ef þið hafið spurningar varðandi þessi veiðileyfi, eða önnur á vefnum, þá er um að gera að hafa samband við okkur.