Fréttatilkynning
Útboð á veiðirétti á vatnasvæði Blöndu framan Blöndvirkjunar
Heiðadeild Veiðifélags Blöndu og Svartár óskar eftir tilboðum í silungsveiði á vatnasvæði veiðifélagsins sem er Blöndulón og þær þverár sem falla í lónið og Blöndu ofan Blöndustíflu. Annarsvegar svæði 1, (austan Blöndu) sem er hluti af Blöndulóni ásamt Galtará, Haugakvísl Ströngukvísl og Herjólfslæk. Hinsvegar svæði 2 (vestan Blöndu) sem er hluti af Blöndulóni ásamt Kúlukvísl, Seyðisá, Beljanda, Þegjanda og Stóralæk. Einnig er hægt er að gera tilboð í vatnasvæðið í heild sinni. Ekki er um magnveiði að ræða á svæðinu, heldur einstaka upplifun í ósnortnu og friðsömu umhverfi, þar sem góðra umgengni og veiðisiða er krafist s.s. að sleppa öllum ósárum fiski.
Veiðifélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðsfrestur er til 30. janúar 2018 og skal skila tilboðum til formanns félagsins, Ægis Sigurgeirssonar, netfang: [email protected] S. 8966011, sem veitir allar nánari upplýsingar.
Stjórnin.
Stjórnin.