Eystri Rangá er ein albesta laxveiðiá landsins með um 4.500 laxa meðalveiði síðustu 10 árin. Eystri Rangá er einnig þekkt stórlaxaá, en stór hluti veiddra laxa er lengri en 75cm. Eins og í flestum laxveiðiám, þá veiðist stór hluti „stóru“ laxana, snemma á tímabilinu í Eystri Rangá. Veitt er á 18 stangir á hefðbundum veiðitíma, frá byrjun júlí og fram í október en veiðileyfin sem nú eru í sölu hér á vefnum eru á stórlaxa tíma í júní. Þá daga er miðað við hámark 12 stangir og er ánni skipt í 4 svæði. 3 stangir veiða hvert svæði í 6 klst róteringu. Eingöngu er veitt á flugu á þessum tíma. Veiðimenn skulu setja alla veidda laxa í þar tilgerðar kistur sem staðsettar eru víðsvegar við ána.

Miðað við þessa skiptingu, þá komast veiðimenn yfir alla ána á 2 dögum. Reynt er að selja hvert svæði fyrir sig, 3 stangir, í einum pakka. Það einfaldar allar skiptingar á milli veiðimanna. En ef óskað er eftir, þá getum við selt staka stöng eða 2 saman í pakka. Hérna má finna veiðileyfin í Eystri Rangá.