Borgarsvæðið er þekkt og afar gjöfult 4 stanga veiðisvæði neðarlega í vatnakerfi Rangánna. Borgarsvæðið tilheyrði áður aðalsvæði Ytri Rangár og er þekkt fyrir miklar aflahrotur á göngutíma en þar liggur einnig mikið af laxi út veiðitímann. Á síðast liðnum árum hefur svæðið verið að gefa 500-1000 laxa. Á svæðinu eru þekktir veiðistaðir, eins og Staurhylur, Straumey og Borg. Á haustin veiðist einnig mikið af sjóbirtingi á svæðinu. Gott veiðihús er á svæðinu sem stendur veiðimönnum til boða frá upphafi tímabils og út September.
Leyfilegt agn á Borgarvæðinu er fluga frá upphafi tímabils og fram til 3. sept en eftir það er einnig leyfilegt að veiða á spún og maðk. Inná veiða.is má nú finna laus holl í september og einnig lausa daga í október, en þá eru 2 stangir seldar saman á svæðið í einum pakka. Í október er oft ennþá fín laxveiði en þá er einnig sjóbirtingurinn mættur á svæðið. Ekkert veiðihús fylgir með í október, enda bara um staka daga að ræða.