Fremri Laxá er klárlega ein albesta urriðaá landsins en ár hvert veiðast 3-5.000 urriðar í ánni. Þó margir urriðanna séu að stærðinni 1-2 pund, þá veiðast fjölmargir stærri urriðar í ánni. Lengsti urriðinn sem við heyrðum að veiddist í sumar, var 63 cm langur sem gæti verið í kringum 6 pundin. Veitt er á flugu í Fremri Laxá og hefur þessi frábæra á verið góður og skemmtilegur skóli fyrir marga sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði. Mikið „action“ er oft við ána, margar tökur, mörgum fiskum landað og margir misstir. Þegar kemur inní júlí, þá gengur lax uppí ána og yfir sumarið þá eru 20-40 laxar skráðir að jafnaði.

Við eigum nokkur laus holl í Fremri Laxá í sumar, mörg hver á frábærum tíma í ánni.  Hérna má sjá lausa daga og verð.

Með veiðileyfunum fylgir gamla veiðihúsið við ána en einnig er hægt að leigja mjög gott ný-uppgert hús sem stendur steinsnar frá ánni.
Kíkið endilega á lausu hollin í Fremri Laxá.