Eins og síðustu 2 ár, þá eru Veiðileyfi í Fossá í Þjórsárdal í sölu hér á vefnum. Fossá skiptist annars vegar í laxasvæði, sem er fyrir neðan Hjálparfoss, og silungasvæði, sem er fyrir ofan Hjálparfoss. Veitt er með 2 stöngum á báðum svæðum og er eina leyfilega agnið, Fluga. Veiðimenn skulu jafnframt sleppa öllum fiski.
Veiðin á laxasvæði Fossár eru oft mjög góð. Veiðisvæðið er tiltölulega stutt, en gríðarlega fallegt. Hérna má sjá lausa daga og verð.
Silungasvæði Fossár er er vinsælt hjá hópi veiðimanna þó svo að stór hluti svæðisins sé lítið stundaður, vegna erfiðs aðgengis. Sjá nánar hérna.