Nú eru komin inná veiða.is, laus veiðileyfi á Fjallinu í Norðurá II. Veitt er með 3 stöngum á þessu svæði og dvelja veiðimenn í mjög góðu „self catering“ húsi, neðarlega á veiðisvæðinu. Veiðin er oft frábær á þessu svæði, ekki síst þegar líður á tímabilið. Mikið af fiski gengur uppá svæðið, af aðalsvæðinu, Norðurá I. Stangirnar 3 eru seldar saman í pakka í 2 eða 3 daga í senn. Hérna má sjá lausa daga og verð.