Núna eru einungis 2 dagar í fyrsta veiðidag þessa árs. 1. apríl er á sunnudaginn og þá hefst veiði í all mörgum ám á suður og norðurlandi. Veðurspáin er allgóð, miðað við árstíma. Frost verður nokkuð aðfaranótt sunnudagsins, á suðurlandi. En þegar líður á morguninn sjáum við rauðar tölur. Hæviðri verður líklega og þurrt. Á norðurlandinu verður hæglætisveður en kalt og munu veiðimenn taka fyrstu köstin í frosti.
Hér á vefnum má finna ýmis vorveiðileyfi. Í apríl eigum við lausa daga í
Galtalæk – sjá hér.
Brúará – sjá hér.
Vatnamótin – sjá hér.
Galtalæk – sjá hér.
Brúará – sjá hér.
Vatnamótin – sjá hér.
Við munum, eins og fyrri ár, fylgjast grannt með gangi mála á veiðislóðum. Kíkið inná vefinn eftir fréttum þegar tímabilið hefst.
Mynd: Hrafn Ágústsson með bleikju úr Brúará, apríl 2013.