Veiði hófst í Vatnamótunum í gær. Sami eða svipaður hópur, „opnaði“ Vatnamótin í ár og undanfarin ár. Veiðimenn voru fremur rólegir í tíðinni, enda kalt og það fraus í lykkjum framan af. Fyrstu köstin voru tekinn að ganga 11 og flestir veiðimenn voru hættir um kl. 17. Þessi ástundun skilaði þó 99 fiskum á land. Sá stærsti var um 85 cm langur og margir voru á bilinu 70-80 cm. Það var „fiskur útum allt“, að sögn Ragnars í Hörgslandi. Vatnið var mjög kalt, svo tökurnar voru fremur grunnar eða mjúkar. Fiskurinn tók frekar á dauða-rekinu, ekki á „strippinu“. Þessi fína byrjun er í takt við það sem við þekkjum úr Vatnamótunum. Þegar fer að hlýna, þá má búast jafnvel við enn betri dögum. Veiðin í Vatnamótunum er oft góð fram í miðjan maí. Í fyrra komu um 1.400 fiskar í heildar á land. Við eigum nokkra lausa daga í apríl í Vatnamótunum. Þá má sjá hérna.