Þverá í Fljótshlíð er 4ra stanga laxveiðiá á Suðurlandi. Leyfilegt agn í Þverá á Fluga og maðkur. Fínt veiðihús fylgir veiðileyfum í ánni. Heildarveiði sumarið 2017 var 448 laxar. Meðalveiði síðustu 8 árin er um 275 laxar á sumri. Verð veiðileyfa er með því hagstæðara sem sést fyrir laxveiðiár.

Eftir frábært veiðisumar í fyrrasumar, þá er bókunarstaða fyrir komandi sumar mjög góð. Einungis eru nokkur síðsumars og haustholl laus. Haustið getur hinsvegar oft verið gjöfull tími.

Hérna má sjá lausa daga og verð í Þverá.