Brúará er önnur vatnsmesta bergvatnsá landsins, hún er lindá og vatnasvæðið um 700 km2, rennsli mjög jafnt eða um 67 rúmmetrar á sek. Lengd hennar er 44 km. Í landi Skálholts eru nokkrir heitir hverir í og við Brúará frá Þorlákshver að Litlahver en neðan hans er mjög fallegt og friðsælt veiðisvæði.
Veiði í Brúará er stunduð frá nokkrum bæjum, lax og silungsveiði á stöng. Silungurinn er bæði sjógenginn og staðbundinn 0.5 til 2 kg að þyngd. Lax gengur einkum í ágúst og september.
Skálholtssvæðið í Brúará er lítið þekkt og ekki er mikil veiðireynsla skrásett af þessu svæði. Aðgengi að hluta svæðisins er gott, en ganga þarf nokkuð út frá þremur vegum til að ná að veiða allt svæðið. Veiðisvæðið tekur við af landi Spóastaða, að ofanverðu, suður með miklu mýrlendi í Mosum, meðfram hverasvæðinu og niður alla Skálholtstungu um Reykjanesbakka, Baulubakka og Vesturtjörn að Músanesi. Veiðimörk svæðisins eru nokkuð fyrir ofan ármótin við Hvítá, beint í vestur frá Músanesinu.