Móra á Barðaströnd er lax-og silungsveiðiá á sunnanverðum Vestfjörðum skammt frá Vatnsfirði og Brjánslæk, þar sem breiðafjarðarferjan Baldur er með landfestar. Um er að ræða tveggja stanga á og eru báðar stangirnar seldar saman.

Móra rennur um Mórudal og býr yfir fjölbreyttum veiðistöðum; strengjum og hyljum. Veiðisvæðið er um 6 kílómetrar og er efsta svæðið friðað og að auki er áin hvíld á milli allra holla. Hægt er að komast á fólksbíl að flestum stöðum á neðri hluta hennar, en efri hlutinn er eingöngu fær hærri bílum.

Leyfilegt agn: Fluga. Fram til 20. ágúst má hver stöng halda eftir einum smálaxi í holli, veiddum löxum umfram það skal sleppt. Eins skal sleppa öllum laxi sem er yfir 70 cm að stærð. Hins vegar er heimilt að landa öllum sjóbirtingi.

Nokkur holl eru laus núna í sumar, og má finna þau hérna.