Veiðisvæði Ytri Rangár verður boðið út á komandi vikum. Núverandi leigutaki hefur verið með ána á leigu í all nokkur ár en mun ekki halda áfram með hana eftir komandi veiðisumar. Nánari upplýsingar verða gefnar út fljótlega en svæðið verður væntanlega boðið út til 3-5 ára, frá árinu 2022.
Laxveiðitíminn í Ytri Rangá hefst uppúr 20. júní ár hvert og líkur um 20. október. Síðustu ár hefur verið veitt á flugu fram í byrjun september en eftir það hefur verið leyft að veiða á maðk og spún.
Nánari upplýsingar síðar.