Veiðileyfi í Brúará í Bláskógabyggð eru komin á vefinn – leyfin fyrir landi Spóastaða og Skálholts.
Brúará er ein vinsælasta veiðiá suðurlands. Í Brúará má finna bæði Bleikju, urriða og þegar kemur inní sumarið, þá veiðist lax í ánni. Veiða má á flugu, maðk og spún í Brúará. Vorveiðin í Brúará er vinsæl – þegar lífríkið vaknar og bleikjan og urriðinn fara á stjá, þá má oft gera flotta veiði. Brúará er vatnsmikil Á og það á sinn þátt í því að það getur tekið tíma að ná góðum árangri, „cracking the code“ – en fyrir þá sem ná því, þá er Brúará í miklu uppáhaldi.
Svæðin sem eru í sölu er 1) Spóastaðasvæðið, eitt þekktasta svæðið í ánni. Mjög gott aðgengi og á svæðinu eru margir af þekktari veiðistöðum árinna. 2) Skálholtssvæðið. Spennandi svæði sem er neðst í ánni, byrjar rétt við ármótin við Hvítá og nær upp að Spóastaðasvæðinu.
Verð veiðileyfa er frá 3.500 til 4.000 kr. fyrir stöngina á dag.