Sogið er eitt þeirra veiðisvæði sem klárlega mun njóta góðs af færri netadögum í Ölfusá þetta sumarið – Síðustu daga hafa veiðimenn orðið varir við auknar göngur uppí Sogið.
Veiðin hefur verið fín í Bíldsfelli, þá sérstaklega neðst á svæðinu – Ásgarður hefur gefið fín skot, bæði laxasvæðið og neðra svæðið – Á Alviðru svæðinu hafa veiðimenn verið að setja í stóra laxa. Svo hefur Syðri Brú skilað löxum síðustu daga og einnig hafa veiðimenn sett í laxa á Torfastöðum.
Meðfylgjandi eru myndir frá því í morgun. Bjarni Róberts landaði 80 og 85 cm löngum löxum í Bíldsfellinu og Sigurlaug Sverrisdóttir landaði þessum 67 laxi við Frúarstein á Ásgarðssvæðinu.
Hérna má finna leyfi í Sogið.



