Fossá í Þjórsárdal nær frá Háafossi og niður í Ármót við Þjórsá, Frá Ármótunum og uppað Hjálpafossi er laxsvæði árinnar – þar fyrir ofan er silungasvæðið. Laxasvæði Fossár er fyrst og fremst síðsumarssvæði, þar sem ágúst og september eru bestu mánuðurnir.

Við heyrðum í morgun af veiðimönnum sem voru á laxasvæði Fossár í gær – þeir settu í fyrstu laxa sumarsins, lönduðu einum og misstu annan. Á þessum tíma árs er Svæðið í kringum Hjálparfoss yfirleitt sterkast, enda leitar fiskurinn í skjólið við fossinn. Oft liggur hann vel uppí hvítfryssinu en þegar halla fer af degi, þá færir hann sig neðar á breiðuna.

Það eru lausir dagar í Fossá á næstu 2-3 viku. Stöngin seld á 30.000 – 45.000, 2 stangir seldar saman í pakka.

Sjá hér