Veiði hófst í Hvannadalsá 1. júlí og höfum við sagt frá því að meira hefur sést af fiski í ánni, nú í upphafi tímabils, en mörg undanfarin ár á sama tíma. Við vorum að fá smá skýrslu frá þeim sem hófu veiðar í gær eftir hádegi.

Þeir félagar Sæmi og Þorleikur voru búnir að fá 3 laxa, núna eftir fyrri daginn. Þeir eiga hollið 9-11. júlí. Tveir 2ja ára laxar, 76 og 80 langir og einn smá lax. Þeir hafa jafnframt séð nokkuð af laxi. Þeir eiga vonandi eftir að setja í fleiri laxa á seinni deginum.

Það eru nokkur noll laus í Hvannadalsá – Hvannadalsá er ekki síst síðsumarsá. Sjá laus holl hérna.