Veiðin í Hvolsá og Staðarhólsá hefur verið fín í sumar, ekki síðast seinni hluta sumars. Hvolsá og Staðarhólsá eru laxveiðiár en einnig veiðist mikið af bleikju á svæðinu. Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk og enginn formlegur kvóti er á svæðinu – veiðimenn hvattir til hófsemdar.
Veiðin í sumar er búin að vera góð og veiðimenn sem hafa verið á svæðinu undanfarið segja að fiskur sé víða, dreifður velum ána. Nú eru hátt i 200 laxar komnir í veiðibókuna og fjöldin allur af bleikju.
Svæðið er búið að vera fullbókað frá því í júlí og fram til 15. september en eftir það eru 4 laus holl. Við höfum ákveðið að selja 2+2 stangir inná lausu hollin. Ekki þarf því að bóka allar 4 stangirnar en veiðimenn þurfa að vera viðbúnir því að deila ánni og húsinu með öðrum veiðihópum.