Hlíðarvatn í Selvogi er eitt al-vinsælasta veiðisvæðið á suðurlandi. Nokkur veiðifélög fara með veiðirétt í vatninu og hérna á veiða.is seljum við laus leyfi fyrir bæði Árblik í Þorlákshöfn og Ármenn. Seldur er takmarkaður fjöldi veiðileyfa í vatnið, dag hvern.

Síðustu sumur hefur vatnið verið nærri uppbókað, frá maí og inn í ágúst. Bleikja er uppistaða aflans en einnig veiðast sjóbirtingar og lax, síðsumars.

Fyrsti veiðidagur tímabilsins er í dag, 1. maí – fínt veður er við suðurströndina – suðvestlæg gola eða vindur, og hiti um C °10. Um síðustu helgi komu velunnarar vatnsins saman við vatnið og gengu með ströndinni og söfnuðu rusli – í lok dags fengu þeir sem mættu, að taka forskot á sæluna og veiða smá. Vatnið tók almennt vel á móti mönnum og var fiskurinn sem kom á land, almennt vel haldinn. Hér að ofan eru nokkrar bleikjur sem fylgdu veiðimann heim.

Hérna má finna laus leyfi sem komin eru á vefinn – laus leyfi Árbliks.