Álftá á Mýrum hefur verið fremur róleg í sumar eins og flestar aðrar ár á landinu. Eitthvað virðist þó rigningin í síðustu viku hafa gert fyrir hana, því hollið sem var að hætta í gær náði samtals 39 fiskum. 27 löxum og 12 sjóbirtingum.
Álftá er afar skemmtileg og þægileg 2ja stanga laxveiðiá á Mýrunum. Veiði í Álftá hefur verið afbragðsgóð síðustu sumur og hafa þau flest skráð sig í sögubækur Álftár sem þau aflahæðstu. Í fyrra veiddust 481 lax í ánni og árið þar áður komu 475 laxar á land. Framanaf sumri og allt til þessa hefur verið veiðin verið mjög róleg. Samtals eru nú komnir á land 105 laxar. Veitt er á flugu og maðk í Álftá.
Hollið sem endaði á hádegi í gær náði, eins og áður sagði, 39 fiskum. Laxarnir voru 27 og sjóbirtingarnir 12. Af þessum 27 löxum voru 22 með lús og því virðist sem rigningarnar á vesturlandi hafi skilað þeim skilyrðum sem þurfti til að laxinn gengi í ánna. Stærsti laxinn var 13 pund og var honum sleppt aftur í ánna. Sjóbirtingarnir voru að 5 pundum.
Nú er að bíða og sjá hvort ekki heyrist fleiri jákvæðar sögur úr ánnum á suður- og vesturlandi.