Fréttir af enn einu útboðinu bárust í dag. Veiðifélag Brynjudalsár í Kjós hefur óskað eftir tilboðum í lax- og silungsveiði í ánni fyrir árin 2014 til 2017, að báðum árum meðtöldum. Brynjudalsá er 2ja stanga á í Hvalfirði, um 45 km frá Reykjavík. Veiðin í ánni hefur sveiflast frá um 150 löxum uppí 340 laxa á síðustu 8 árum. Nú í sumar eru um 225 laxar komnir á land.
Frestur til að skila inn tilboðum rennur út 7. október og tilboðin verða opnuð þann 10. október.