Það hefur víða snjóað í fjöll og hitastig á morgnana er yfirleitt aðeins rétt fyrir ofan frostmark. Veðurfarið á þessum tíma árs breytir ekki því að hængarnir í hyljunum eru árásargjarnir og standa sína vakt. Þegar veðrið var sem verst í síðustu viku þá veiddist jafnvel enn betur en áður, í sumum ám. Þegar þessi 100 cm höfðingi kom á land í Bjarnastein í Vatnsdalsá í gær var samt fallegt og stillt veður. Jón Oddur heitir veiðimaðurinn en í fyrra veiddi hann 101 cm lax í þessum sama hyl. Erfitt er að staðfesta þyngdina á honum en ef mið er tekið af 96 cm laxi sem viktaður var í Vatnsdalnum fyrr í vikunni og reyndist 20,5 pund, þá er þessi vart undir 23 pundum.

Nú eru yfir 1.050 laxar komnir úr Vatnsdalsá sem er frábær veiði. Á síðustu 20 árum hefur áin 5 sinnum áður farið yfir 1.000 laxa markið.

Svona til upprifjunar þá er hérna frétt frá því í fyrra af stórlaxi sem veiddist við mjög erfiðar aðstæður.

Myndin er fengin að láni inná FB síðu Vatnsdalsár en hér má fylgjast með fréttum úr Vatnsdalnum.

[email protected]