Nú stendur sjóbirtingsvertíðin sem hæst. Ágætar fréttir berast af veiði víða frá og aðstæður til veiða eru góðar. Nú hefur fengist leyfi til að framlengja veiðitímabilið í Laxá og Brúará og í Eldvatni í Meðallandi. Hér inni á veiða.is má því finna lausa daga á tímabilinu 10-20. október. Við minnum á að með hverju tveggja daga sjóbirtingsholli sem er bókað inná veiða.is, fylgir þetta fína sjóbirtingsbox með.

[email protected]