Annað útboð – Veiðifélag Dunkár í Dalabyggð leitar eftir tilboðum í laxveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2014, 2015 og 2016. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út 28. nóvember. Tilboðin verða opnuð mánudaginn 2. desember kl. 14:00.
SVFR hefur verið með Dunká á leigu síðustu 2 ár en veitt er með 2 stöngum í ánni og leyfilegt agn hefur verið fluga og maðkur. Meðalveiði í ánni síðustu ár hefur verið rétt rúmir 100 laxar á sumri. Í sumar komu um 130 laxar á land.
Leiguverðið sem SVFR hefur verið að greiða fyrir Dunká er nærri 5 m.kr. á ári.