Í dag var var skrifað undir samning um leigu á Víðidalsá og Fitjá til næstu 5 ára. Félagið Laxabakki ehf. sem Jóhann Hafnfjörð Rafnsson er talsmaður fyrir, bauð hæst í ána í útboðinu í haust. Jóhann mun einnig verða umsjónarmaður árinnar og þess að sjá um sölu veiðileyfa. Jóhann hefur verið leiðsögumaður við ána í árabil.
Hér má sjá fréttatilkynninguna:

Víðidalur 24. október 2013

Fréttatilkynning frá Veiðifélagi Víðidalsár og nýjum leigutökum Víðidalsár og Fitjár.

Í dag undirritaði nýr leigutaki Laxabakki ehf, leigusamning við Veiðifélag Víðidalsár, um leigu á Víðidalsá og Fitjá til fimm ára.
Laxabakki ehf. er í eigu Jóhanns Hafnfjörðs, Davíðs Mássonar og Halldórs Hafsteinssonar.

Forsvarsmaður og sölumaður veiðileyfa verður Jóhann Hafnfjörð, [email protected], en hann hefur víðtæka reynslu bæði sem veiðimaður og leiðsögumaður við árnar til margra ára.

Veiðifyrirkomulag verður með svipuðu móti og verið hefur. Veiðifélagið hefur gert margar jákvæðar breytingar á veiðifyrirkomulagi undanfarin ár. Árið 2009 var eingöngu heimiluð fluguveiði á laxasvæðinu og veiðimenn skyldaðir til þess að sleppa öllum laxi yfir 70 cm.  Þær breytingar sem nú verða eru þær að eingöngu verður leyft að halda tveimur löxum undir 70 cm á hverja stöng á dag. Þegar kvóta er náð er heimilt að veiða og sleppa að vild.

Það er von okkar að hóflegri kvóti og aðgerðir undanfarinna ára skili sér á komandi árum í aukinni laxveiði. Víðidalsá er þekkt fyrir stórlaxa. Meðalþyngd er um 9 – 10 pund og stefnan er að auka enn frekar hlutfall stórlaxa í veiði. Sleppihlutfallið hefur farið úr 10 til 15% í 50 til 60% á undanförnum árum og er takmark okkar að koma því upp í 80 til 90% á komandi árum.

Sú breyting verður gerð að eingöngu verður leyft að veiða á flugu á silungasvæði Víðidalsár. Sömu reglur munu gilda á silungasvæðinu varðandi sleppingar á stórlaxi og kvóta. Samkvæmt veiðibók síðasta árs er nú þegar megnið af veiðinni á flugu. Ef skoðaðar eru veiðitölur undanfarinna ára er þetta eitt gjöfulasta silungasvæði landsins en einnig veiðist þar töluvert af laxi. Síðastliðið sumar voru 33 laxar færðir þar til bókar.
Þjónusta í húsi og matur verða eins og best verður á kosið og mun úrval matreiðslumeistara sjá um veitingarnar.

Það er von aðila að allir veiðimenn njóti dvalar við árnar og jafnframt í veiðihúsinu Tjarnarbrekku, en sumarið 2013 var tekin þar í notkun ný svefnálma með rúmgóðum herbergjum.

[email protected]