Það styttist í jólin og enn og aftur viljum setja fram smá gjafatvennu. Frá deginum í dag og fram að jólum þá mun Rod Clip, besti nýji veiðiaukahluturinn á fluguveiðisýningunni í Las Vegas 2012, fylgja með fullum FLYPAD sem keyptur er af veiða.is. Fullur FLYPAD inniheldur 8 staka bakka, 2 flugubox með bakka og kassan sjálfan. Fullur FLYPAD getur rúmað allt að 1.300 flugur.

Rod Clip hefur verið gífurlega vinsælt á þessu ári og margir veiðimenn sem uppgötvuðu notagildi þess nú í sumar. FLYPAD er líklega ein flottasta flugugeymsla sem komið hefur fram á síðustu árum. Hér er hægt að kíkja á FLYPAD og hérna er Rod Clip.

Sendið póst á [email protected] eða hringið í síma 897 3443, fyrir frekari upplýsingar. Við keyrum FLYPAD heim til kaupanda á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum, eins lengi og kostur er fyrir jól.

 

[email protected]