Við erum hægt og bítandi að bæta við vörum inní veiðibúðina hér á veiða.is. Nýjasta varan er Elbe Perfection Bakpoki með Mittistösku. Þessi flotti bakpoki frá Elbe kemur með Mittistösku sem hægt er að hafa sér eða festa neðan við bakpokann. Mittistaskan er einangruð þannig að hún heldur matvælum kældum í nokkurn tíma. Upplagt fyrir ölið og samlokurnar. Stærsta hólfið er rúmgott og rúmar vel hlífðarföt, veiðibox og fleira sem nauðsynlegt er að hafa með í veiðinni eða göngutúrnum. Samtals eru 7 hólf á bakpokanum/mittistöskunni.

Einfalt er að festa veiðistangir/göngustafi og vatnsbrúsa utaná töskuna. Sjö hólf eru á bakpokanum/mittistöskunni.

Þessi bakpoki er á frábæru verði, meðan birgðir endast, kr. 10.540. Við sendum hvert á land sem er og nú fyrir jólin, keyrum við vöruna heim á höfuðborgarsvæðinu og á suðurnesjum.

[email protected]