Búðardalsá á Skarðströnd er ein af betri laxveiðiám landsins. Veitt er á 2 stangir í Búðardalsá og leyfilegt er að veiða bæði á maðk og flugu. Besta sumarið í ánni var 2008 þegar 674 laxar komu á land. Á árunum 2008-2011 var meðalveiðin 539 laxar sem er rétt um 3 laxar á stöng á dag, að meðaltali. Nú í sumar komu 435 laxar á land. Áin er yfirleitt mjög vel bókuð og sömu hollin koma í ána, ár eftir ár. Þó er alltaf líklegt að eitt og eitt holl losni. Bókanir eru hafnar fyrir komandi vertíð og er um að gera fyrir „gömlu“ hópana og nýja áhugasama veiðimenn, að láta heyra í sér.

 

{gallery}budardals{/gallery}

[email protected]