Bókanir eru í fullum gangi hjá flestum leigutökum landsins þessa dagana. Veiðimenn liggja yfir plani næsta sumars, fá upplýsingar um lausa daga og verð. Það er ljóst eftir frábært laxveiðisumar, síðasta sumar, að eftirspurn eftir laxveiðileyfum verður meiri en undanfarin 2 ár. Silungsveiðiárnar og vötnin munu einnig draga marga til sín. Bókanir eru í fullum gangi hjá Veiðiþjónustunni Strengir en eins og kom fram um daginn þá mun verð veiðileyfa í flaggskip þeirra, Breiðdalsá, lækka að jafnaði um 20-30%. Hér er yfirlit yfir laus veiðileyfi hjá Strengjum.