Eins og flestir veiðimenn vita þá er Nessvæðið í Aðaldal eitt albesta stórlaxasvæði landsins. Árlega veiðast þar margir laxar um eða yfir 100 cm langir og sem dæmi þá veiddust 2 af stærstu löxum landsins í fyrra, á Nessvæðinu. Veiðimenn sem veitt hafa á Nessvæðinu í sumar hafa sagt að óvenjumikið væri að stórum löxum á svæðinu nú í sumar, og þá er mikið sagt. Nils Folmer Jorgenson er þekktur stórlaxaveiðimaður og í morgun náði hann þessum 112 cm laxi á Lönguflúð á Nessvæðinu. Þessi lax gerir örugglega tilkall til titilsins „stærsti lax sumarsins“. Baráttan var tekin uppá myndband og verður birt von bráðar. Til hamingju með þennan flotta lax. Hér að neðan eru nokkrir til viðbótar sem Nils hefur landað, þar á meðal er mynd af 109 cm laxi sem hann náði á Nessvæðinu í fyrra.

{gallery}nils{/gallery}

Það eru örfáar lausar stangir á Nessvæðinu í ágúst.

[email protected]