Laxá á Refasveit er 3ja stanga laxveiðiá í Laxárdal. Áin fellur til sjávar norðan við Blönduós. Veitt er með flugu og maðk í Laxá. Veiðin það sem af er sumri í Refasveitinni er búin að vera ágæt. Nú eru rétt um 110 laxar komnir á land í ánni sem er fínt á þessum tíma sumars. Töluvert mikið af laxi er í ánni og er hann dreifður útum alla Á. Veiði hófst í byrjun júlí. Meðalveiði er nálægt 300 löxum á sumri. Nýjir Leigutakar tóku við ánni síðasta vetur og gekk þeim vel að selja í ána í sumar en þó eru 3 laus holl í haust. Á meðfylgjandi mynd má sjá einn leigutaka árinnar, Atla Þór Gunnarsson, með vænan lax sem hann náði í Laxá í sumar.

[email protected]