Laxá og Brúará eru sjóbirtingssvæði í Fljótshverfi í Skaftárhreppi. Áður fyrr var svæðið mikil matarkista fyrir íbúa svæðisins. Eins og ýmiss veiðisvæði í nágrenni gosstöðvanna á suðurlandi, þá datt veiði niður eftir 2010 en síðustu 2 sumur hefur verið viðsnúningur til hins betra. Síðasta sumar var svæðið ekki mikið stundað en nokkrir þeirra sem kíktu austur veiddu vel og urðu mikið varir við birting, bæði stærri og smærri. Í haust verður einungis veitt frá fimmtudegi til sunnudags, heilir dagar frá morgni til kvölds. Tvær stangir eru á svæðinu og er leyfilegt að veiða á flugu, maðk og spón. Stangirnar eru seldar saman í einum pakka og kostar „pakkinn“ kr. 40.000 pr. dag. Sendið póst á [email protected] fyrir nánari upplýsingar um lausa daga.

[email protected]