Nú er vika liðin frá því að veiðin hófst í Þingvallavatni, vika sem hefur verið mjög erfið veðurfarslega. Aldrei hafa jafn margir erlendir veiðimenn sótt landið heim á þessum tíma, til að reyna að setja í stórurriðann og hafa þeir margir verið mjög ötulir að „berja“ Þingvallavatn, þrátt fyrir frost og kuldastrekking. Það eru hinsvegar ekki einungis þeir erlendu sem hafa verið við vatnið því íslenskir fluguveiðimenn hafa einnig verið duglegir að skjótast. Hér er einn þeirra, Bjarki Már Jóhannsson, með einn 90 cm urriða sem hann náði í Þingvallavatni nú um helgina.

Þegar líður á vikuna má reikna með eilítið hlýrra veðri og þá má jafnframt reikna með að fleiri íslenskir veiðimenn fari til veiða á Þingvöllum. Við minnum á að veiðisvæði Þjóðgarðsins á Þingvöllum er í Veiðikortinu 2015 og þeir sem eru á póstlista veiða.is, fá kortið á betra verði. Hér að neðan má sjá flotta mynd af fiskinum hans Bjarka.

[email protected]