Svalbarðsá er ein albesta laxveiðiá landsins. Veitt er á 2 til 3 stangir í Svalbarðsá og leyfilegt agn er fluga. Svalbarðsá er á norð-austurlandi, um 170 km frá Akureyri. Hreggnasi hefur komið að leigu Svalbarðsár frá árinu 2007 og ná á dögunum gekk Veiðifélag Svalbarðsár og Hreggnasi, frá langtímaleiguamningi um veiðirétt á vatnasvæði árinnar. Meðalveiði á hverja dagstöng er um 2,5 laxar pr. stangardag, sem er með því besta sem þekkist hér á landi.
Frá árinu 2009 hefur Svalbarðsá verið veidd undir „veiða og sleppa“ fyrirkomulaginu en við það hafa veiðitölur og seiðavísitala vaxið mjög til hins betra. Uppselt er í Svalbarðsá í sumar.