Fyrsti laxinn veiddist í gær, í Djúpós í Ytri Rangá. Norskir veiðimenn eru við sjóbirtingsveiðar í Ytri. Auk þess að ná vænum birtingi í Djúpósnum, þá náðu þeir rúmlega 3ja kílóa, grálúsugum laxi sem telst fyrsti stangveiddi lax sumarsins sem við höfum heyrt fréttir af. Laxveiðitímabilið hefst í Ytri eftir rúman mánuð, og því lofa þessar fréttir góðu fyrir sumarið. Hér má finna lausa daga í Ytri í Sumar.

En það var ekki bara fyrsti laxinn sem gladdi veiðimenn við Djúpós í gær. Undir kvöld náði Erlingur Snær Loftsson gríðarlegar fallegum birtingi sem mældist 91 cm. Glæsilegur fiskur sem tók ónefnda flugu, hnýtta af Erlingi. Baráttan tók um 40 mínútur og barst langt niður bakka Ytri/Hólsár. Hér að neðan má sjá fiskinn hans Erlings.

[email protected]