Veiðin er hafin í Norðurá, hófst kl. 7 í morgun. Fyrsti laxinn tók 17 mínútur yfir 7 í morgun, átta punda grálúsug hrygna. Einar Sigufússon náði þessum laxi á Brotinu. Annar lax tímabilsins kom síðan á land skömmu síðar en það var Eyrún Sigþórsdóttir sem landaði 77 cm hrygnu á Bryggjunni. Dagurinn byrjar vel og hafa veiðimenn orðið varir við lax víða. Við munum taka stöðuna síðar í dag.
Við minnum á að nokkrar stangir eru lausar nú í júní. Sjá hér.

[email protected]